Múrarar, málarar, smiðir og fleiri iðngreinar
Áratuga reynsla!

Við erum sérfræðingar í spörtlun, málun, steypu, múrvinnu og öllu almennu viðhaldi innanhúss sem utan. Bjóðum upp á sérsniðnar lausnir sem endast.

Okkar markmið eru að bjóða ávallt hæstu gæði, samkeppnishæf verð og tímaáætlanir sem standast.

Við erum réttu aðilarnir í múrverkið, málningarverkin og flest allt viðhald.

Rúnar múrari: Þegar ég var einungis 10 ára fékk ég stjórnlausan áhuga á steypu og öllu sem henni tengist. Ég byrjaði á því að negla saman mót, fékk smá steypu í hjólbörur hjá Steypustöð Breiðholts og steypti í mótin mín. Að námi loknu hef ég unnið við viðhaldi steyptra mannvirkja í nær 40 ár og var mitt fyrsta stóra verk viðhald Kópavogshælis undir stjórn Línuhönnunar.

Fjalar málarameistari. Fjalar er löggiltur málarameistari og verkfræðingur, með sérhæfingu í málun og almennu viðhaldi húsnæðis. Hann hefur tekið þátt í fjölmörgum viðhalds- og endurbótaverkefnum. Fjalar hefur unnið með flestum fagstéttum og leggur metnað sinn í að skila ávallt vönduðu verki

Verkáætlanir

Við klárum verkefni innan umsamins tímaramma. Tími þinn er dýrmætur og við setjum það í forgang að skila vönduðu verki á áætlun.

Hagkvæmni

Með um 40 ára reynslu þá erum við mjög skilvirkir. Þetta gerir okkur kleift að bjóða samkeppnishæf verð án þess að skerða gæði.

Sérfræðiþekking

Við höfum verið í múriðnaði í nærri 40 og höfum einnig verið í málningarverkefnum og flestöllum viðhaldsverkefnum, innanhúss og utan, bæði litlum en einnig stórum.

Þjónustan okkar

Við bjóðum upp á víðtæka þjónustu í tengslum við múr og málningarvinnu.

Húsaviðgerðir

Sérhæfing í steypuviðgerðum fyrir heimili og fyrirtæki. Varanlegar lagfæringar sem þú getur treyst.

Málun og spörtlun

Við tökum að okkur hvers kyns málningarverkefni. 40 ára reynsla í faginu.

Tröppuviðgerðir

Sérhæfing í tröppuviðgerðum innan og utanhúss til að tryggja öryggi og endingu á heimili þínu.

Þakmálun

Þakmálun til að vernda og fríska upp á ytra byrði heimilisins og lengja líftíma þess.

Flotun

Mikil reynsla í flotun til að leiðrétta ójafnt yfirborð, bæta öryggi og útlit.

Annað

Tökum að okkur ýmis verkefni. Hafið samband fyrir upplýsingar.

Fáðu tilboð í þitt verkefni

Ferlið okkar er einfalt, sendu á okkur fyrirspurn og við gefum þér tilboð sem stenst. Gæði, hagkvæmni og tímaáætlun sem stenst.

Algengar spurningar

Já, við bjóðum upp á frí verðtilboð. Hafðu samband við okkur til að ræða verkefnið þitt og við getum gefið þér tilboð án skuldbindingar.
Já, við sjáum til þess að skilja eignina þína eftir hreina og snyrtilega eftir að verkum okkar er lokið.
Já við tökum að okkur sérsniðinn múrverkefni, hafðu samband og leyfðu okkur að heyra hugmyndina þína.